Sérstilling hlutverka fyrir ákveðna notendahópa

Hér eru leiðbeiningar um það hvernig fyrirtæki geta tekið fyrirfram skilgreind hlutverk og sérstillt þau að sínum þörfum. Fyrirtæki spyrja oft hvort þau geta búið til hlutverk fyrir ákveðna notandahópa innan fyrirtækins sem er nú hægt með því að fylgja eftirfarandi leiðbeingum.

Athugið að þetta stjórnar ekki heimildum notanda. Ef notandi á ekki að geta opnað ákveðin gögn er því stjórnað með heimildasamstæðum.

 

Við mælum með að undirbúa og prófa hlutverkið í sandbox umhverfi fyrst. Hægt er svo að lesa það yfir í production umhverfi þegar allar sérstillingarnar eru tilbúnar.

Farið er inn í Forstillingar (Hlutverk).

 

image-20240412-170839.png

Næst er valið það hlutverk sem að hentar best, og það afritað í nýtt. Hér getur verið gott að velja það hlutverk sem er með sem flestum aðgerðum og fela þær, frekar en að bæta við.

image-20240412-171145.png

Við það verður til nýtt hlutverk og passa þarf að hafa hakað í “Virkt” og “Sýna í hlutverkaleit”.

Þegar það er búið að stofna nýja hlutverkið þarf passa að skipta yfir í það áður en það er byrjað að sérstilla.

Þegar búið er að opna nýja hlutverkið er aftur farið í Forstillingar (Hlutverk).

Næst er nýja hlutverkið valið og smellt á “Sérstilla síður”.

Þá opnast sérstillingarhamur í nýjum glugga.

Nú er hægt að breyta öllu líkt og í sérstillingu notanda. Allar breytingar munu varðaveitast á þessu nýja hlutverki.

Hér er hægt að fela og bæta við aðgerðum á upphafsmynd. Einnig er hægt að fara í sölu- og innkaupaskjöl, t.d. afhendingarsamkomulag, og sérbreyta öllum aðgerðum, reitum og línum á síðunni. Ef filterar eru búnir til, vistast þeir einnig á þeim síðum sem þeir eru búnir til. Þetta er hægt að gera á öllum helstu síðum og töflum í kerfinu.

 

 

Þegar sérstillingu er lokið er smellt á lokið.

 

 

Nú þarf að endurræsa kerfið (loka og opna aftur).

Við það uppfærist nýja hlutverkið og sérstillingarnar haldast inni. (Ef það uppfærðist ekki prófið að breyta í annað hlutverk og svo aftur til baka í nýja hlutverkið).

 

Þegar það er verið að stilla þessu upp er alltaf hægt að opna sérstillinguna aftur og lagfæra.

 

 

Til þess að flytja hlutverk milli umhverfa, til dæmis úr sandboxi inn í production er hægt að nota aðgerðirnar flytja út og flytja inn. Fylgjð leiðbeiningum kerfisins þegar þessar aðgerðir eru notaðar.