Villa: Við getum ekki vistað breytingar eins og er vegna þess að verið er að uppfæra skrá í töflunni „ “ í færslu sem gerð er í annarri lotu.
Villa
Hér er dæmi um það hvernig villan lítur út:
Við getum ekki vistað breytingar eins og er vegna þess að verið er að uppfæra skrá í töflunni „Útflutningslínur“ í færslu sem gerð er í annarri lotu.
Bíðið þar til hinni færslunni er lokið en það getur tekið tíma. Reyna skal aftur síðar.
Stjórnendur geta séð lása í notkun á síðunni „Læsingar gagnagrunns“ eða notað fjarmælingu, stöðva má lotur gegnum stjórnendamiðstöð leigjanda. (Kenni skyndimyndar: )
Lausn
Gagnagrunnslæsingar gerast venjulega þegar kerfið er að fjöldabóka færslur eða keyra lengri keyrslur.
Gagnagrunnslæsingin stjórnar aðgangi notenda að sömu gögnunum samtímis. Til að verja færslu gegn öðrum færslum sem breyta sömu gögnunum, setur fyrsta færslan lás á gögnin. Lásin helst á þar til færslunni er lokið.
Ef það er að taka lengri tíma en vanalega er hægt að fletta upp hvaða keyrslur eru í gangi með því að fara í leitina og skrifa læsingar gagnagrunns.
Ef keyrslan er óvenjuleg eða að taka of langan tíma getur admin notandi farið inn í admin center og slökkt á keyrslunni.
Smellt er á ‘Sessions’.
Þar er svo smellt á ‘show session details’.
Þar sést hvaða notandi er að keyra keyrsluna. Notandinn er valinn og smellt á ‘cancel selected session’.
Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Microsoft: